Flupp

Skilmálar

Drög — ekki lokaútgáfa

Þessi texti er ekki lögfræðilega yfirfarinn og hefur ekki verið samþykktur. Hann lýsir engum gildandi skilmálum — hann telur einungis upp þær spurningar sem lokaskjalið þarf að svara, og er hér svo hlekkir í vefnum vísi á raunverulega síðu. Hafðu samband við postur@flupp.is ef þú þarft svör áður en lokaútgáfan birtist.

Hér verða skilmálar Flupp. Þessi síða er beinagrind: hún telur upp þau atriði sem lokaskjalið þarf að taka afstöðu til. Ekkert hér lýsir gildandi skilmálum og ekkert hér er ákveðið.

Hvað er verið að kaupa

  • Hver er seljandi vörunnar, hvert er hlutverk Flupp og hvaða samningssamband myndast við kaup.
  • Hvernig söluverði er skipt og hvað af því rennur til söfnunarinnar.
  • Hvernig verð er birt og hvernig fer með virðisaukaskatt.

Greiðsla

  • Hvaða greiðsluleiðir standa til boða og hver tekur við greiðslunni.
  • Hvenær greiðsla er skuldfærð og hvað staðfesting á pöntun felur í sér.
  • Hvað gerist ef greiðsla mistekst.

Afhending

  • Hvenær afhending hefst og hvernig tímasetning hennar tengist lokum söfnunar.
  • Hvernig og hvar vörur eru afhentar og hver annast afhendinguna.
  • Hvað gerist ef vara skilar sér ekki og hvert kaupandi snýr sér þá.

Skil og riftun

  • Hvaða réttur neytanda til að falla frá kaupum á við og hvernig honum er beitt.
  • Hvernig skilum er háttað og hver ber kostnað af þeim.
  • Hvort undantekningar eigi við og þá hverjar.

Ábyrgð og hlutverk

  • Hvert hlutverk Flupp er gagnvart kaupanda og gagnvart seljanda.
  • Hvert hlutverk hópsins og umsjónarmanns hans er.
  • Hvernig ábyrgð skiptist og hvort takmarkanir eigi við.

Hafa samband

  • Hvert kaupandi snýr sér með fyrirspurn eða kvörtun.

Síðast yfirfarið: ágúst 2026. Aftur á forsíðu