
Safnaðu fyrir ferðinni með Flupp!
Hópurinn fer af stað saman og hvert ykkar fær sína eigin söfnun. Veldu hvað þú vilt selja og deildu einum hlekk — fólk pantar og greiðir sjálft, og Flupp heldur utan um pantanirnar og greiðslurnar.
Kostar ekkert að safna.
Ertu með hópkóða? Skráðu þig og sláðu hann inn — eða fáðu hann seinna hjá þeim sem sér um söfnunina.
Er hópurinn þinn ekki hjá Flupp? Fá Flupp fyrir hópinn
- Kostar ekkert að safna
- Einn hlekkur fyrir alla söluna
- Greitt í gegnum Flupp
Söfnunin þín
Einn hlekkur, þínar vörur
Safnað
0 kr.
Markmið
þú velur
Pantanir
0
Úr vöruúrvalinu

Klósettpappír
Eldhúsrúllur
Svona virkar það
Frá hlekk til hagnaðar
Flupp sér um vörurnar, pantanirnar og greiðslurnar.
01
Veldu vörur
Úr vöruúrvali Flupp — þú kaupir ekkert fyrirfram.
02
Deildu hlekknum
Einn hlekkur á alla sem vilja styrkja þig.
03
Fylgstu með sölunni
Pantanir og staða söfnunarinnar á einum stað.
Vörur
Þetta getur þú selt
Þú velur hvað þú vilt selja og sérð strax hvað þú færð af hverri sölu. Þú kaupir ekkert fyrirfram.

Eldhúsrúllur

Bökunarpappír

Álpappír
Af hverju Flupp
Allt sem þarf til að safna
Flupp einfaldar fjáröflun frá fyrstu pöntun til útgreiðslu, með skýrri yfirsýn og öruggu greiðsluferli.
Einn hlekkur fyrir alla söluna
Engir útprentaðir listar og ekkert handvirkt utanumhald.
Skýr yfirsýn
Sjáðu pantanir, kaupendur og stöðu söfnunarinnar á einföldu yfirliti.
Hagnaður frá byrjun
Sjáðu nákvæmlega hvað hefur safnast og hvað er eftir að markmiðinu.
Einfalt kaupferli
Vinir og fjölskylda versla á nokkrum sekúndum með öruggu greiðsluferli.
Frá byrjun til enda
Svona lítur söfnunin út
Stofnaðu söfnun
Veldu vörur og settu þér markmið. Tekur nokkrar mínútur.
Deildu hlekknum
Sendu hann á fjölskyldu, vini og nágranna.
Fólk pantar og borgar
Þú fylgist með pöntunum jafnóðum í stjórnborðinu.
Þú sækir vörurnar og kemur þeim til kaupenda
Þegar söfnuninni lýkur færðu vörurnar afhentar í einu lagi og kemur þeim til þeirra sem pöntuðu.
Hagnaðurinn er greiddur út
Þegar allir hafa fengið sitt fer hagnaðurinn beint til þín.
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband og við aðstoðum þig.
Hvernig virkar Flupp?
Hópurinn þinn — bekkurinn, liðið eða kórinn — er skráður hjá Flupp og fær hópkóða. Þú skráir þig, slærð inn kóðann og færð þína eigin söfnun: þú velur sjálf/ur hvað þú vilt selja og deilir þínum persónulega söfnunarhlekk.
Hvar fæ ég hópkóðann?
Hjá þeim sem sér um söfnunina hjá hópnum þínum. Þú getur skráð þig og klárað þína söfnun þótt kóðinn sé ekki kominn — þú slærð hann bara inn á stjórnborðinu þegar þú færð hann, og þá fer söfnunin í loftið.
Hópurinn minn er ekki hjá Flupp — hvað geri ég?
Sendu okkur línu um hópinn og við setjum hann upp. Þú stofnar ekki hóp sjálf/ur; við göngum frá tímabilinu og verðlaununum með umsjónarmanni og sendum svo hópkóða sem allir í hópnum nota.
Hvernig fæ ég hagnaðinn greiddan?
Þú færð hagnaðinn greiddan þegar söfnun lýkur. Þangað til sérðu nákvæmlega hvað hefur safnast á yfirlitinu þínu.
Hvernig fær fólk vörurnar sínar?
Seljandinn afhendir vörurnar þegar söfnun lýkur. Flupp heldur utan um pantanir svo þú sérð nákvæmlega hver pantaði hvað.
Hvernig deili ég söfnuninni minni?
Þú færð persónulegan söfnunarhlekk sem þú getur sent í skilaboðum, á samfélagsmiðlum eða í tölvupósti. Allir með hlekkinn geta verslað.
Er kaupferlið öruggt?
Já. Greiðslur fara fram í gegnum öruggt greiðsluferli og kortaupplýsingar eru aldrei geymdar hjá Flupp.
Hvar er hópurinn þinn staddur?
Ég er í hópi sem notar Flupp
Skráðu þig, veldu hvað þú vilt selja og tengdu söfnunina við hópinn með hópkóðanum. Þú getur klárað þitt þótt kóðinn sé ekki kominn.
Skrá mig í FluppHópurinn minn notar ekki Flupp
Sendu okkur línu um bekkinn, liðið eða hópinn. Við setjum hópinn upp og sendum hópkóða sem allir í hópnum nota.